245.is  

 

   

Forsíða

    

Eldri fréttir

    

Viðtöl og greinar

    

Þankabrot

    

Nýir Sandgerðingar

    

Aðsent efni 

    

Myndasafn 

    

Smáauglýsingar 

    

Sandgerðisdagar 

    

Um vefinn

    

Auglýsingaverð

    

Hafa samband

   

Leitarvél














 



 

 Þjónusta í Sandgerði  

   

Afþreying

   

Bankar

    

Bensínstöðvar

    

Bílaviðgerðir 

    

Dagvöruverslun

    

Ferðir/Flutningar

    

Félög

    

Gisting

   

Gjafavörur

    

Heilsa og útlit

    

Kirkjustarf

   

Menning og listir

    

Opinber þjónusta

    

Sjávarútvegur

    

Skólar

    

Söfn/Sýningar

    

Tölvur og Internet

    

Veitingahús/Salir

    

Vélsmiðja

    

Verktakastarfsemi


 Fréttir

Þú ert hér > Forsíða > Fréttir

20.8.2007 12:00:46
Barnabókin Sumar í Sandgerði er komin út
Knattspyrnudeild Reynis og grallararnir taka höndum og loppum saman


Selma og grallararnir

Önnur bókin í bókaflokknum Grallarasögur er komin út.  Sögupersónur eru kisurnar Glingló og Dabbi og hundurinn Rex sem eru rammíslensk og uppátækjasöm og eiga sér lifandi fyrirmyndir í Sandgerði.

Félagarnir eiga heimasíðu sem heitir www.grallarar.is og þar má finna ýmsa skemmtilega leiki, vísnahorn, litabók, uppskriftir og margt fleira.

Selma Hrönn Maríudóttir er hugmyndasmiður verksins um Glingló, Dabba og Rex. Hún samdi texta og vísur í bókunum og sá um hönnun og uppsetningu á vefnum. Hún starfar sem vefhönnuður í fyrirtækinu Tónaflóð sem hún á og rekur ásamt manni sínum Smára V. Sæbjörnssyni.  Saman standa þau að útgáfu bókanna  og halda úti ýmsum vefjum m.a. vefnum 245.is.  Brynhildur Jenný Bjarnadóttir teiknar allar myndir en hún hefur lokið mastersnámi í teiknimyndagerð.

Bækurnar eru ætlaðar börnum á aldrinum 2-6 ára.  Í hverri bók eru sjö stuttar sögur með litríkum myndum.  Sögurnar eru í vísnaformi vel til þess fallnar að auka orðaforða barna, en einnig sagðar á einföldu máli fyrir yngstu lesendurna.

Hugmyndin með bókunum er að kynna ungum lesendum ýmis bæjarfélög á landinu og benda á skemmtilega afþreyingu á hverjum stað sem kostar lítið nema úthaldið. Þannig mun hver bók verða tileinkuð ákveðnu bæjarfélagi og hefst kynningin í Sandgerði þar sem m.a. er farið í fjöru- og eggjaskoðunarferð. 

Hver hefur ekki gaman af að fara í fjöruna og fleyta kerlingar, skrifa í sandinn, fara í eltingaleik við öldurnar og gá hvað leynist undir steinunum. Eða að fara út í móa og skoða egg og unga.  Ferðir sem þessar geta verið ógleymanlegar fyrir alla fjölskylduna og ómetanlegt að sjá lítil andlit ljóma við hverja uppgötvun. 

Það var vel við hæfi að afhenda Sigurði Val bæjarstjóra fyrsta eintakið af nýútkominni bók, en Sandgerðisbær ásamt fleiri góðum aðilum styrkti útgáfu fyrstu bókarinnar.


Selma og Sigurður Valur

Knattspyrnudeild Reynis og grallararnir hafa ákveðið að taka höndum og loppum saman, en deildin undirbýr nú átak í að fjölga ungum iðkendum.  Aðilar á vegum Knattspyrnudeildar Reynis munu ganga í hús í bæjarfélaginu á miðvikudags- og fimmtudagskvöld n.k. (22. og 23. ágúst) og bjóða bókina Sumar í Sandgerði til sölu. 

50% af söluverði hverrar bókar sem þeir selja munu renna til unglingastarfs Knattspyrnudeildar Reynis en bókin kostar 1.000 kr.


Glingló, Dabbi og  Rex eru að sjálfsögðu alltaf í boltanum.

Myndir: 245.is
Teikningar: Brynhildur Jenný Bjarnadóttir

lifid@245.is



Prentvæn útgáfa

   
    Til baka